10.08.2023
Matthías Örn Friðriksson stóð uppi sem sigurvegari í A-deild á fyrsta Fiskidagsmótinu í pílu á Dalvík í gærkvöld, 9. ágúst. Hann sigraði Edgar Kede Kediza í úrslitaleik og í þriðja sæti var Óskar Jónsson.
Sigurður Jóhann Sölvason sigraði Maron Björgvinsson í úrslitaleik B-deildar og í þriðja sæti var Sveinn Brimar.
09.08.2023
Atli Rúnar Halldórsson skrifar.
09.08.2023
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid heiðra Fiskidaginn mikla og gesti hans í ár með nærveru sinni. Þau taka bæði þátt í dagskrá samkomunnar.
08.08.2023
Gleðimessa í Dalvíkurkirkju föstudaginn 11. ágúst kl 17 - Allir velkomnir
07.08.2023
Fiskidagsvikan 2023 í Menningarhúsinu Bergi
Bókasafnið verður opið 10-17 frá þriðjudegi til laugardags. Þar er fjölbreytt afþreying fyrir alla fjölskylduna. Í ágúst stendur yfir sýningin Ferð án fyrirheits eftir listamanninn Ragnar Hólm. Aðgangur ókeypis.
06.08.2023
Markaður við Dalbæ
Fimmtudaginn 10. ágúst standa íbúar og starfsfólk Dalbæjar, heimilis aldraðra á Dalvík, fyrir skemmtilegum fjölskylduprúttmarkaði við Dalbæ kl. 13-16.
05.08.2023
Hvað heita göturnar núna og hvar býrð þú?
03.08.2023
Fiskidagurinn mikli hefur nú sem fyrr komið fyrir sérstakri gestabók í „dalakofanum“ í Böggvisstaðadal. Þeir sem skrifa í gestabókina lenda í potti og á aðalsviði Fiskidagsins mikla verða vinningar dregnir út.
03.08.2023
Eitt af því sem einkennir hátíðina er Fiskisúpukvöldið mikla þar sem íbúar Dalvíkurbyggðar bjóða gestum og gangandi að smakka súpu. Í ár verður það að kvöldi föstudagsins 11. ágúst kl. 20:15-22:15.
01.08.2023
Pilkington Props-gestir á 20 ára afmæli Fiskidagsins mikla