Flugeldasýningin 2017
Sýningin er í boði Samherja og það verður ekkert gefið eftir og menn klárir í að gera betur en á síðasta ári. Snillingarnir í björgunarsveitinni á Dalvík eru fyrir löngu byrjaðir að undirbúa ROSALEGA sýningu. Flugeldasýningin verður að venju að kvöldi Fiskidagsins mikla kl 23.50. á hafnargarðinum á Dalvík beint í kjölfarið á stóru tónleikunum. Líkt og áður mun björgunarsveitin á Dalvík sjá um uppsetningu og alla vinnu í kring um þetta stóra verkefni. Sýningarnar á Fiskidaginn mikla hafa tekist vel og þótt afar vel uppsettar og áhorfendur hafa gripið andann á lofti og hrópað af ánægju og undrun. Björgunarsveitin á Dalvík hefur á að skipa einstaklega hæfu og lærðu fólki á þessu sviði.