Strandblak

Strandblak – Fiskidagsmótið '23
Fiskidagsmót Rima verður föstudaginn 11. ágúst og hefst kl. 11.

Fyrirkomulagið verður þannig að við stefnum á að hafa byrjenda/barnadeild og blandaðar deildir, kk/kvk og/eða kvk/kvk. Raðað verður í deildir eftir styrkleika.

 Skráning og óskir sendist á netfangið sigurlaughanna@gmail.com. Skráningu lýkur kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 9. ágúst. Mótsgjald 2.000 kr. á mann og greiðist inn á reikning nr. 0177-05-405000, kt. 450511-0510.

 Ágóði mótsins rennur í viðhaldssjóð fyrir vellina. Hlökkum til að sjá ykkur á Dalvík.