Fiskidagsvikan 2023 í Menningarhúsinu Bergi

Fiskidagsvikan 2023 í Menningarhúsinu Bergi

Bókasafnið verður opið 10-17 frá þriðjudegi til laugardags. Þar er fjölbreytt afþreying fyrir alla fjölskylduna. Í ágúst stendur yfir sýningin Ferð án fyrirheits eftir listamanninn Ragnar Hólm. Aðgangur ókeypis.

Fimmtudagur 10. ágúst

Frá kl. 13 geta allir tekið þátt í að skapa eitt stærsta og veglegasta gluggalistaverk Dalvíkur og auðvitað er hafríkið þemað.

Föstudagur 11.ágúst

Frá kl.13 verður andlitsmálun í boði fyrir börn og fullorðna og sömuleiðis aðstoð við að flétta sér vináttubönd til að gefa á Vináttukeðjunni kl. 18.Kl. 22:15 – MúsikBingó með Fanney Birtu!  Ávallt mikil stemning. Miðinn kostar 1.500 kr.  – opið á meðan húsrúm leyfir.

 Laugardagur 12. ágúst

Útimarkaður við Menningarhúsið Berg 11-18. Fjölbreytt handverk og munir heimamanna til sölu.

 Cafe Aroma í Bergi

Fjölbreyttar veitingar. Smurðar beyglur, kaffi, kökur, svalandi drykkir og margt fleira. Pallurinn við Berg er frábær staður til að vera á í góða veðrinu.

Opið í Fiskidagsvikunni 10-17 þriðjudag og miðvikudag, 10-22 fimmtudag, 10-18:30 og 21:30-2 eftir miðnætti föstudag (þ.e. lokað á meðan súpukvöldið varir),  

11-19:30 laugardag og 12-16 sunnudag.

Upplýsingar um dagskrá á Facebooksíðum Menningarhússins, Bókasafnsins og Cafe Aroma.