Fjölskylduganga – Dísa í Dalakofanum

Fjölskylduganga – Dísa í Dalakofanum
Fiskidagurinn mikli hefur nú sem fyrr komið fyrir sérstakri gestabók í „dalakofanum“ í Böggvisstaðadal. Þeir sem skrifa í gestabókina lenda í potti og á aðalsviði Fiskidagsins mikla verða vinningar dregnir út.

Kofinn er á tóftarbrotum smalakofa sem þar stóð til skamms tíma. Sagnir herma að einmitt þarna hafi skáldið Davíð Stefánsson frá Fagraskógi ort kvæðið um Dísu í dalakofanum.

Lagt verður af stað frá Dalvíkurkirkju kl. 16 miðvikudaginn 9. ágúst undir leiðsögn Jóhanns Magnússonar. Gangan tekur rúmar þrjár klukkustundir og er öllum fær.