Vináttukeðjan 2017 – Setning fjölskylduhátíðarinnar “Fiskidagurinn
mikli”
Vináttukeðjan er um klst. löng dagskrá. Framkvæmdastjóri
Fiskidagsins mikla Júlíus Júlíusson setur hátíðina. Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri
Akureyrarbæjar og stofnandi ástarvikunnar í Bolungarvík flytur vináttukeðjuræðuna 2017.
Leikskólabörnin syngja, Guðmundur Kristjánsson og Selma dóttir hans taka lagið og Örn og
Valdimar heilla gesti Vináttukeðjunnar. Friðrik Ómar, Gyða Jóhannesdóttir og karlaraddir ljúka
dagskránni að venju með “Mömmu” laginu. Börnin fá vináttufána og knúskorti og vináttuböndum
verður dreift, flugeldum skotið upp. Að venju verður risaknús til þess að leggja vináttu og
náungakærleikslínur fyrir helgina.