Fiskidagurinn mikli 2012 heiðrar alla þá sem stunduðu hákarlaveiðar og stóðu fyrir þilskipaútgerð bænda úr Svarfaðardal á seinnihluta 19. aldar.
Hákarl hefur öldum saman verið nýttur hér á Íslandi, en á 18. öld er farið að veiða hann í meira
mæli en áður, aðallega vegna lifrarinnar til lýsisframleiðslu, en mikil spurn var eftir
hákarlalýsi til götulýsinga víða erlendis. Þetta var orkuútflutningur þeirra tíma. Verðið var
hátt og veiðarnar jukust mikið alla 19. öldina og verða eiginlega undirstaðan undir
þilskipaútgerðina á þeirri öld. Þilskipin voru stærri og gátu sótt lengra, bikuð svört og seglin
dökk. Davíð Stefánsson hefur séð þessi skip frá Fagraskógi og yrkir Nú sigla svörtu skipin, þar
sem hann lýsir þeim háska sem fylgdi hákarlaveiðunum. Veiðarnar gátu skilað miklum hagnaði og
menn gátu jafnvel greitt fyrir þilskip eftir eina vertíð. Þannig komu útgerðarmenn fótum undir
sig. Mikilvægi hákarlaveiða minnkar síðan upp úr 1870 því þá er komin til sögunnar ný tegund
orku, steinolía, sem keppir við hákarlalýsið. Þá sneru útgerðarmenn þilskipa sér að öðrum
fiskveiðum og vægi þorskveiða jókst til muna. Þessum kafla í útgerðarsögunni, og orkuútflutningi
Íslendinga, var lokið.
Hér á Norðurlandi hófst þilskipaútgerð rétt fyrir miðja öldina. Hér voru það fyrst og fremst
bændur sem tóku sig saman og mynduðu samlagsútgerð til að stunda hákarlaveiðar og var
þilskipaútgerðin langöflugust á Eyjafjarðasvæðinu. Svarfdælir tóku á þessum árum virkan þátt í
útgerð þilskipa sem stunduðu hákarlaveiðar. Með þessum veiðum sáu menn peninga, þetta gátu verið
mikil uppgrip og það átt m.a. þátt í að því að stofnaðir voru sparisjóðir. Þannig hafði
hákarlaveiðin margvísleg áhrif sem vara enn í dag. Á Fiskidaginn mikla hafa þeir feðgar Reimar
Þorleifsson og Gunnar Reimarsson sýnt hákarl. Svo er einnig nú og getið þið gestir okkar litið á
skepnuna hér frami á bryggjunni og fylgst með hákarlaskurði klukkan 15. Ég bið ykkur svo að
klappa fyrir hákarlaveiðimönnum sem lögðu með sínum hætti grunn að því samfélagi sem við höfum í
dag. Minnismerki um hákarlaveiðina er nú komið við Byggðasafnið Hvol.
