Flugeldasýningin 2023
Sýningin er í boði Samherja sem á 40 ára afmæli í ár. Snillingarnir í björgunarsveitinni
á Dalvík eru fyrir löngu byrjaðir að undirbúa myndarlega sýningu. Flugeldasýningin verður að
venju að kvöldi Fiskidagsins mikla kl 23.50. á hafnargarðinum á
Dalvík beint í kjölfarið á tónleikunum. Líkt og áður mun björgunarsveitin á Dalvík sjá um
uppsetningu og alla vinnu í kring um þetta stóra verkefni. Sýningarnar á
Fiskidaginn mikla hafa tekist vel og þótt afar vel uppsettar og áhorfendur hafa gripið
andann á lofti og hrópað af ánægju og undrun. Björgunarsveitin hefur á að skipa
einstaklega hæfu og lærðu fólki á þessu sviði.
