Vináttukeðjan 2014 – Fiskisúpukvöldið 10 ára – Ferð til
Færeyja
Kl. 18.00 föstudaginn 8. ágúst verður Fiskidagurinn
mikli settur með um klst. langri dagskrá í kirkjubrekkunni. Sem við köllum Vináttukeðjuna.
Vináttukeðjuræðuna 2014 flytur Séra Hildur Eir Bolladóttir .Meða þeirra sem fram koma eru
hinir einu sönnu Greifar, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Erna Hrönn, Friðrik Ómar, Gyða
Jóhannesdóttir, Hljómsveitin Thunder, Karlakór Dalvíkur og leikskólabörn úr Dalvíkurbyggð.
Knúskorti og vináttuböndum verður dreift, flugeldum skotið upp. Og í tilefni af því að
Fiskisúpukvöldið er 10 ára í ár drögum við úr afmælisdögum allra viðstaddra og aðalvinningurinn
er ferð til vina okkar í Færeyjum. Meðal annara vinninga er passi til að skjótast á bakvið stóra
sviðið á laugardagskvöldinu og fá mynd með stórstjörnunum. Í lokin verður risaknús til þess að
leggja vináttu og náungakærleikslínur fyrir helgina. Súpukvöldið hefst síðan kl 20.15 og stendur
til 22.15.