Styrktartónleikar í Bergi – Jónína Björt.
Jónína Björt er fædd og uppalin
á Dalvík. Jónína er 24 ára og nú í vor útskrifaðist hún úr Listaháskóla Íslands en þar lærði hún
klassískan söng hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Í haust mun Jónína hefja nám við New York Film
Academy í New York og þar mun hún stunda nám við söngleikja- og kvikmyndadeild. Því er Jónína að
halda styrktartónleika hérna í Bergi þann 9. ágúst kl 17:00 til að styrkja nám sitt erlendis og
verður tónlistin mjög fjölbreytt, klassísk verk og einnig söngleikjalög. Ásamt Jónínu munu Leif
Kristján Gjerde (píanó), Viktoría Sigurðardóttir (söngkona og dansari) og Sigríður Ásta
Olgeirsdóttir (söngkona) koma fram á tónleikunum. Frítt er á tónleikana en tekið verður við
frjálsum framlögum. Jónína mun einnig koma fram í Messu í Dalvíkurkirkju og á
Vináttukeðjunni.