Sigrún Eldjárn opnar sýningu í Bergi
Sigrún Eldjárn opnar sýningu í
Menningarhúsinu Bergi í Fiskidagsvikunni miðri, nánar tiltekið miðvikudaginn 6. ágúst kl. 17.00.
Sýningin er nokkurs konar óður til blýantsins, þess merka verkfæris. Þarna verða sýndar
blýantsteikningar af ýmsu tagi, teiknaðar á pappír, léreft og tré. Fiskar og fuglar eru áberandi
yrkisefni auk þess sem könnuð verða dularfull tengsl milli blýanta og eyrna. Á sýningunni verður
barnabókahorn þar sem líta má myndskreytingar úr nokkrum bóka Sigrúnar. Þar verður líka hægt að
tylla sér fletta bókum, lesa og skoða.