Kl 17.00 í Dalvíkurkirkju Messa. Þar sem að presturinn okkar séra Magnús G. Gunnarsson
og hinn nývígði og nýkomni prestur okkar séra Oddur Bjarni Þorkelsson þjóna fyrir altari. "66
árgangs stúlkan og djákninn hún Þórey Dögg Jónsdóttir predikar. Um tónlistina sjá Jónína Björt
Gunnarsdóttir og Leif Kristján Gjerde. Birgir Björnsson syngur dúett með Jónínu Björt í einu
lagi.
Strax í kjölfarið i kirkjubrekkunni Vináttukeðjan 2014. Dagskrá þar sem að Fiskidagurinn mikli
er settur. Þetta er um klst. löng dagskrá sem er glæsileg. Vináttukeðjuræðuna 2014 flytur
Séra Hildur Eir Bolladóttir .Meða þeirra sem fram koma eru hinir einu sönnu Greifar, Jónína
Björt Gunnarsdóttir, Erna Hrönn, Friðrik Ómar, Gyða Jóhannesdóttir, Hljómsveitin Thunder,
Karlakór Dalvíkur og leikskólabörn úr Dalvíkurbyggð. Knúskorti og vináttuböndum verður
dreift, flugeldum skotið upp, happadrætti og Í lokin verður risaknús til þess að leggja
vináttu og náungakærleikslínur fyrir helgina.