Sæplast er 30 ára og heldur uppá það með ykkur kæru gestir.
Af þessu tilefni ætla Sæplastmenn í góðu samstarfi við aðra að reyna við heimsmet. Heimsmetið
verður ekki að veruleika nema með frábæru samstarfi við Greifann á Akureyri. Þar vinna með með
bros á vör gott starf undir dyggri stjórn Arinbjarnar Þórarinssonar, hann og hans fólk gera t.d
klárar 500 16" kúlur af deigi og í pítsuna fer rétt rúmt eitt tonn af hráefni. Stefna er sett á
að reyna að baka 80 fermetra af saltfiskpítsu með EKTA saltfiski frá meistara Elvari Reykjalín
milli kl 11.00 og 17.00 á Fiskidaginn mikla 9. ágúst, hver pítsa er 120 tommur.
Á bás Sæplast verður mikið um að vera, Einar Mikael töframaður verður með 3 innkomur og ekki má
gleyma því að fjölskylduratleikur Fiskidagsins Mikla er tileinkaður þessu tilefni og
vinningarnir glæsilegir.