Vala Yates er klassískt menntuð söngkona og tónskáld. Hún hefur tekið þátt í fjölda
fjölbreyttra tónlistarviðburða, sem flytjandi jafnt sem höfundur - allt frá barrokk til
nýklassíkur til popptónlistar - og má segja að tónlist hennar sé innblásin frá þessum ólíku
áttum. Hún hefur unnið með popptónlistarmönnum á borð við Barða Jóhanns, Keren Ann Zeidel og
Ólafi Arnalds, en stígur nú í fyrsta sinn fram með sitt eigið verkefni. Vala leitast eftir að
semja einlæga tónlist beint frá hjartanu, þar sem jákvætt viðhorf fær að njóta sín í
textasmíðum.
Frítt á tónleikana á Dalvík.