Kvöldtónleikar og FLUGELDASÝNING í boði Samherja.
Það ætti enginn að missa
af stórtónleikunum á 15 ára afmæli Fiskidagsins mikla. Þessi MIKLI viðburður er
samvinnuverkefni Samherja, RIGG viðburðafyrirtækis Friðriks Ómars, Fiskidagsins Mikla, ,Exton og
fl. Á fimmta tug tæknimanna, söngvara og hljóðfæraleikara taka þátt í þesari stór sýningu sem er
að öllum líkindum ein sú stærsta og viðamesta sem hefur verið sett upp á Íslandi. Meðal þeirra
sem koma fram eru heimamennirnir Friðrik Ómar, Matti Matt og Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Erna
Hrönn, Regina Ósk, Stefán Jakobsson, Stefanía Svavarsdóttir, Hera Björk, Bryndís Ásmundsdóttir,
Sigga Beinteins, Jógvan Hansen, Ingó Geirdal, Margrét Eir, danshópur undir stjórn Yesmine Olsen
og 11 manna stórhljómveit skipuð landsliði hljóðfæraleikara. Meðal þess sem verður á dagskránni
eru Vilhjálmur Vilhjálmsson, Tina Turner, AC/DC, Tom Jones, Elton John, Deep Purple, Billi Joel
og fleira og fleira.Dagskráin endar síðan með risaflugeldasýningu sem að snillingarnir í
björgunarsveitin á Dalvík sjá um, sýningin er einnig í boði Samherja.