Brotið
Þremenningarnir María Jónsdóttir, Stefán Loftsson og Sveinn Haukur Sigvaldason hafa undanfarin
fjögur ár unnið að gerð heimildarmyndar um sjóslysin er urðu á utanverðum Eyjafirði í
aftakaveðrinu 9. apríl 1963. Samfélagið á Dalvík varð þá fyrir miklu höggi er sjö sjómenn frá
plássinu fórust.
Aðstandendur myndarinnar, sem holtið hefur nafnið BROTIÐ, hafa víða leitað fanga við
heimildaöflun; tekið viðtöl við fólk og safnað myndefni.
Ekki er laust við að verkefnið hafi á stundum tekið á sig mynd eins konar björgunarleiðangurs
því margir viðmælenda voru komnir á efri ár þegar hafist var handa. Sumir segja þar frá fyrir
fram kvikmyndatökuvél í sitt fyrsta og síðasta sinn. Sömuleiðis er ryk dustað af gömlu myndefni
sem óvíst er að nokkru sinni hefði komið fyrir almenningssjónir ef ekki væri fyrir BROTIÐ.
Farið var í verkefnið mestmegnis með bjartsýni eina að vopni. Fljótlega vatt það upp á sig og
væri ekki komið á þennan stað ef ekki væri fyrir fjárstuðning einstaklinga, sjóða og fyrirtækja
auk velvilja fólks við að leggja verkefninu lið á ýmsan annan hátt. Kunna þremenningarnir þeim
öllum bestu þakkir fyrir.
Höfundar BROTSINS eiga hvert og eitt rætur á Dalvík og er myndin afurð samvinnu þeirra.
Kvikmyndataka og klipping er í höndum Stefáns Loftssonar Sigvaldasonar, kvikmyndagerðamanns.
María Jónsdóttir, margmiðlunarhönnuður, heldur utan um rekstur og kemur að handriti og listrænum
þáttum. Framkvæmdastjóri og forsprakki heimildaöflunar er Haukur Sigvaldason, trésmiður, einnig
mörgum að góðu kunnur fyrir ljósmyndir sínar.
BROTIÐ er nú fullklippt og komin í endanlegt form eftir því sem fjármagn leyfði. Þó eftir sé að
fínpússa viss tæknileg atriði hefur vinnuhópurinn engu að síður afráðið að sýna myndina gestum
og gangandi kring um Fiskidaginn mikla sumarið 2016.
Sýningar verða í Ungó: Frumsýning fimmtudag 4. ágúst kl 14,00 . Einnig kl 16,00 -18,00.
Föstudaginn 5. ágúst kl 14,00 - 16,00. Sunnudaginn 7. ágúst kl 14,00.
Ekki verður um eiginlega miðasölu að ræða heldur geta gestir styrkt okkur með frjálsum framlögum til dæmis þúsund krónum
Myndatexti: Björgvin og Björgúlfur EA í Akureyrarhöfn 10. apríl 1963