Brauðsala á tjaldsvæðinu og fyrir utan Samkaup
Félagar í Slysavarnadeildinni Dalvík selja kleinur og ástarpunga fimmtudaginn 7. ágúst. Sölumenn
deildarinnar verða fyrir utan Samkaup Úrval auk þess sem gengið verður um tjaldsvæðið. Ágóði
sölunnar rennur til góðra málefna. Þessi sala er orðin hluti af Fiskidagsstemningunni og margir
árlegir gestir á tjaldsvæðunum bíða spenntir eftir góðgætinu.