18.08.2023
Einfaldast og réttast er að lýsa reynslu af Fiskideginum mikla 2023 með því að segja: Þetta
tókst!
18.08.2023
„Fiskidagurinn mikli er stærsti löggæsluviðburðurinn á Norðurlandi eystra í ár og umtalsverð
áskorun að sinna honum eins og nauðsyn krefur á þeim tíma sem flestir landsmenn voru í
sumarleyfum, þar með taldir lögreglumenn.
15.08.2023
Heiðursviðurkenning Fiskidagsins mikla Fiskidagurinn mikli heiðraði sem fyrr þá sem hafa með
jákvæðum hætti haft áhrif á atvinnusögu Dalvíkurbyggðar og íslenskan sjávarútveg. Fleiri voru að
þessu sinni heiðraðir en ella í ljósi þess að Fiskidagurinn var ekki hátíðlegur haldinn á árunum
2020, 2021 og 2022.
11.08.2023
Enginn deyr úr leiðindum við að skera og smyrja rúgbrauð eða þvo og skera kál - alla vega ekki á
Dalvík. Herdeildir rúgbrauðs og grænmetis fara hamförum í sínum þáttum undirbúnings og skemmta
sér svo vel að söngur og trall ómar um allt hafnarsvæðið. Meira að segja er stiginn dans af og
til í miðjum klíðum.
11.08.2023
Já, já. Eyjamennirnir mæta og eru reyndar þegar mættir. Þegar Vestmannaeyjar ber á góma á Dalvík
í Fiskidagsvikunni kemur jafnan tvennt upp í hugann: Geir Jón Þórisson og föruneyti og Grímur
kokkur með allt sitt harkalið og góðmeti.
11.08.2023
Við erum að laga 110 lítra af karrí-kókoslagaðri skelfisksúpu fyrir um 700 manns. Í þetta sinn
fá gestir okkar ferskan fisk í málin sín og við hellum síðan súpunni yfir líkt og tíðkast á
fínustu veitingahúsum.
11.08.2023
Bændarokkarar byggðarlagsins, sjálft Teigabandið, stíga á stokk á hátíðarsviðinu um helgina,
skárra væri nú. Þeir æfðu af krafti í aðsetri sínu við Dalvíkurhöfn í gær og komu vel undan
sumri, hvorki ryð né ryk að finna í gangverkinu og nú skal gengið til Fiskidagsleiks með
nýsmurða vél.
10.08.2023
Ólíkt hafast menn að í Dalvíkurbyggð í Fiskidagsvikunni en markmiðin eru jafnan þau hin sömu: að
gleðja heimafólk og gesti Fiskidagsins úr öllum landshornum sem mest og best um helgina.
Bros og öflugir keppendur á fyrsta Fiskidagsmótinu í pílu
10.08.2023
Matthías Örn Friðriksson stóð uppi sem sigurvegari í A-deild á fyrsta Fiskidagsmótinu í pílu á
Dalvík í gærkvöld, 9. ágúst. Hann sigraði Edgar Kede Kediza í úrslitaleik og í þriðja sæti var
Óskar Jónsson. Sigurður Jóhann Sölvason sigraði Maron Björgvinsson í úrslitaleik B-deildar og í
þriðja sæti var Sveinn Brimar.
Meistarar fiskiveislu á útopnu í undirbúningi
09.08.2023
Atli Rúnar Halldórsson skrifar.